Breyting á deiliskipulagi Akureyrarflugvallar.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 5. nóvember 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Akureyrarflugvöll.
Breytingin felur í sér að afmarkað er svæði fyrir lagningu Hólasandslínu 3 í jarðstrengjum. Er lega jarðstrengsins (tvö jarðstrengjasett) sýnd á uppdrætti ásamt 20 m helgunarsvæði.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi Breiðholts.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hefur þann 5. nóvember 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Breiðholt.
Breytingin felur í sér að afmarkað er svæði fyrir lagningu Hólasandslínu 3 í jarðstrengjum. Er lega jarðstrengsins (tvö jarðstrengjasett) sýnd á uppdrætti ásamt 20 m helgunarsvæði.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 18. febrúar 2020,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2020