Breyting á deiliskipulagi, Norður-Brekka – neðri hluti.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 12. ágúst 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Munkaþverárstræti 11.
Breytingin felur í sér 24 m² viðbyggingu á vesturhlið hússins innan núverandi byggingarreits ásamt stækkun á kvisti, vestan og austan mænis. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,420 í 0,503.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 14. ágúst 2020,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 27. ágúst 2020