Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins – Aðalstræti 60-64.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 18. desember 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Aðalstræti 60-64.
Breytingin felur í sér að lóðinni við Aðalstræti 60-64 er skipt upp í 4 lóðir þar sem lóðir 60, 62 og 64 eru íbúðarhúsalóðir og lóð 60-64 er sameiginleg.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 14. janúar 2020,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 28. janúar 2020