Samráðsfundur um skipulagsmál á Akureyri og uppbyggingu bæjarins verður haldinn föstudaginn 28. nóvember n.k. í sal Lionsklúbbsins
í Skipagötu 14, Alþýðuhúsinu kl. 14:00.
- Setning fundarins og hugleiðing – Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, verkefnisstjóri atvinnumála á Akureyri
- Áherslur skipulagsnefndar 2014-2018 – Tryggvi Már Ingvarsson, formaður skipulagsnefndar
- Fasteignamarkaðurinn á Akureyri, staða og horfur – Þröstur Sigurðsson, ráðgjafi Capacent
- Þróun fasteignamarkaðarins með augum fasteignasala – Arnar Guðmundsson, fasteignasali
- Sunnudagsrúntur verktakans – Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi
- Hvað er framundan – tækifæri til þéttingar byggðar – Pétur Bolli Jóhannesson, skipulagsstjóri
Fundurinn er öllum opinn og eru aðilar á byggingamarkaðnum, hönnuðir og fasteignasalar sérstaklega hvattir til að mæta.
26. nóvember 2014
Skipulagsstjóri