Rennibrautirnar opnar frá klukkan 14

Tölvugerð mynd af nýju innisundlauginni.
Tölvugerð mynd af nýju innisundlauginni.

Framkvæmdir við innilaug Sundlaugar Akureyrar hófust í dag.

Í vetur mun skólasund að hluta fara fram í lendingarlauginni fyrir rennibrautirnar vegna framkvæmdanna. Rennibrautirnar verða því aðeins opnar frá kl. 14 á virkum dögum.

Innilaugin hefur lengi þjónað íbúum og gestum vel en er orðin barn síns tíma. Það er því mikið gleðiefni að hún verði endurnýjuð, þar sem lögð verður áhersla á bætt aðgengi fyrir alla.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan