Regnbogamessa í Akureyrarkirkju

AkureyrarkirkjaRegnbogamessa verður í Akureyrarkirkju á sunnudaginn 21. október klukkan 20. Yfirskrift messunnar er Kirkjan - okkar allra, og vísar til þess að allir þegnar hennar eigi sama rétt, hver með sínu móti.

Í messunni mun Guðfríður Lilja Grétarsdóttir forseti Skáksambands Íslands flytja ávarp og Páll Óskar Hjálmtýsson syngur. Fulltrúar frá nýstofnuðum hópi ungliða Samtakanna 78 á Norðurlandi flytja stutt ávörp og atriði. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Kórinn og Páll Óskar syngja saman. Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson leiðir stundina. Samverustund með léttum veitingum verður í Safnaðarheimilinu að messunni lokinni.

Aðstandendur messunnar, sem koma fram undir nafninu Gulur, rauður, grænn, en það eru auk Akureyrarkirkju Norðurlandshópur Samtakanna 78 og Norðurlandsdeild FAS, Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra. Gulur, rauður, grænn stóð að regnbogavöku um frelsi eða fjötra samkynhneigðra í samfélaginu í mars á þessu ári. Samtökin 78 og Saga Capital styrkja regnbogamessuna að þessu sinni.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan