Öruggara Norðurland eystra

Á myndinni eru fulltrúar samstarfsaðila. Myndin er tekin af facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi…
Á myndinni eru fulltrúar samstarfsaðila. Myndin er tekin af facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Norðurlandi eystra var formfest í gær undir merkjum Öruggara Norðurland eystra.

Samstarfsaðilar í verkefninu eru Lögreglan á Norðurlandi eystra og öll sveitarfélögin í umdæminu; Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur, Þingeyjarsveit. Einnig Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sjúkrahúsið á Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Framhaldsskólinn á Húsavík, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Bjarmahlíð þolendamiðstöð.

Framkvæmdateymi starfar á vegum verkefnisins þar sem settir verða af stað fjölbreyttir vinnuhópar um það er lýtur að forvörnum í samfélaginu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan