Opið í Hlíðarfjalli 26 daga af 29 í febrúar

Við Strýtuskálann um síðustu helgi. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð.
Við Strýtuskálann um síðustu helgi. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð.

Aðstæður til útiveru og skíðaiðkunar í Hlíðarfjalli voru með allra besta móti í febrúar. Skíðasvæðið var opið 26 daga af 29 með nægum snjó og veðrið oft og tíðum með allra besta móti.

“Aðsóknin er búin að vera frábær enda hafa aðstæður boðið upp á það. Hingað komu í kringum 17.000 manns í vetrarfríum grunnskóla og hér voru færeyskir hópar tvær helgar. Við höfum að auki fengið skólahópa alls staðar af landinu og að öllu samanlögðu voru gestir í Hlíðarfjalli rúmlega 24.000 manns í febrúar sem er með því betra sem þekkist,” segir Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins.

Opnunartími hefur verið lengdur um eina klukkustund bæði fimmtudaga og laugardaga og er nú opið frá kl. 10-17 á laugardögum og 13-19 á fimmtudögum. Sjá nánar um opnunartíma hér.

Nokkur snjóbráð hefur verið í hlýindum síðustu daga en þó er ennþá nægur snjór í Fjallinu og kaldari dagar fram undan. "Páskahretið bregst aldrei og mun án efa færa okkur ríkulega nýja sendingu af góðum snjó," segir Brynjar Helgi.

Framundan eru páskarnir í lok mánaðarins og má búast við að þá liggi straumurinn norður til að fara í Fjallið og njóta tónleika og annarra viðburða á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan