Opið fyrir styrkbeiðnir til velferðarráðs 2024

Mynd: Elva Björk Einarsdóttir
Mynd: Elva Björk Einarsdóttir

Velferðarráð Akureyrarbæjar úthlutar styrkjum til starfsemi og þjónustu, sem fellur að hlutverkum þess, einu sinni á ári.

Velferðarráð stýrir fjölbreyttri velferðarþjónustu á vegum Akureyrarbæjar. Styrkir eru m.a. veittir til félagasamtaka og einstaklinga sem starfa á sviði félagsþjónustu.

Umsækjendur eru beðnir að kynna sér reglur Akureyrarbæjar um styrkveitingar sem og samþykkt ráðsins um markmið og vinnulag.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum Þjónustugátt Akureyrarbæjar:

www.thjonustugatt2.akureyri.is

Umsóknina er að finna undir fyrirsögninni: Velferðarmál

 

Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2024

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan