Nýjar leikskóladeildir hafa verið opnaðar við Síðuskóla og Oddeyrarskóla.
Sú leið að opna nýjar leikskóladeildir í Síðuskóla og Oddeyrarskóla hefur leitt til þess að nú eru öll börn á Akureyri yfir 12 mánaða aldri komin með leikskólapláss (þ.e. börn sem höfðu náð 12 mánaða aldri 31. ágúst 2023). Næstu skref í uppbyggingu leikskólamála í bænum eru nýr leikskóli í Hagahverfi og ný gjaldskrá sem tekur gildi um næstu áramót og felur m.a. í sér gjaldfrjálsan sex tíma leikskóla með tekjutengingu á það sem umfram er.
Frá og með næstu áramótum verða fyrstu sex klukkustundir hvers leikskóladags, frá kl. 8-14, gjaldfrjálsar og gjald fyrir alla skólatíma innan átta tíma lækkar. Áfram verður greitt fyrir fæði í skólunum með sama hætti og verið hefur. Gjaldskráin verður tekjutengd fyrir bæði einstaklinga og sambúðarfólk til hagsbóta fyrir tekjulægri hópa sem þýðir að við útreikning leikskólagjalda verður horft til tekna og hjúskaparstöðu. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs og verður staðan metin að liðnum 6 og 12 mánuðum frá upphafi verkefnisins.
Reglur um ystkinaafslátt gilda áfram og einnig verða áfram í gildi heimgreiðslur fyrir fólk sem ekki nýtir sér þjónustu leikskóla en það mun gagnast mörgum fjölskyldum og um leið skapa meira rými í leikskólum bæjarins. Reglur um heimgreiðslur er að finna hér.
Enn eru þrír mánuðir eftir í undirbúningsvinnu hjá Akureyrarbæ áður en ný gjaldskrá tekur gildi og verður á þeim tíma meðal annars haft samráð við Jafnréttisstofu, fulltrúa foreldra, leikskólastjórana aftur og Félag leikskólakennara.
Málið var á dagskrá bæjarstjórnarfundar 5. september sl.