Breyting á deiliskipulagi - Lækjargata 9a.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. október 2014 samþykkt
deiliskipulagsbreytingu fyrir Innbæinn vegna Lækjargötu 9a.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur er stækkaður til suðurs og nýtingarhlutfall hækkað.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 22. október 2014,
Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 6. nóvember 2014