Skipulagsstofnun staðfesti þann 10. september 2015 breytingar á aðalskipulagi Hörgárbyggðar 2006-2026 og aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykktar voru í sveitarstjórn Hörgársveitar og bæjarráði Akureyrar 20. ágúst 2015.
Breytingarnar fela í sér að mörkum Hörgársveitar og Akureyrarkaupstaðar er breytt á 160 m kafla við Lón í Hörgársveit. Land Akureyrarkaupstaðar, óbyggt svæði, skerðist um 0,4 hektara og land Hörgársveitar, óbyggt svæði, stækkar sem því nemur.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarnar öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 10. september 2015.
F.h. forstjóra,
Hafdís Hafliðadóttir Ottó Björgvin Óskarsson
B deild - Útgáfud.: 24. september 2015