Nr. 752/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað

Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 13. ágúst 2015 samþykkt breytingu á deiliskipulagi Naustahverfis, reits 28 og Naustagötu, vegna Krókeyrarnafar 21.
Breytingin felur í sér að hámarksbyggingarmagn á lóð nr. 21 við Krókeyrarnöf er aukið í 351 m². Þar með er heimilt að gera íbúðarrými undir svölum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 14. ágúst 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 28. ágúst 2015


Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan