Skipulagsstofnun staðfesti þann 24. júní 2015 breytingu á aðalskipulagi Akureyrarkaupstaðar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar 16. júní 2015.
Í breytingunni felst að kirkjugarður í Lögmannshlíð, svæði 1.43.2 O, er stækkaður til vesturs og suðurs. Afmörkun svæðis fyrir þjónustustofnanir í Lögmannshlíð, svæði 1.43.3 S, er breytt.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 24. júní 2015.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson
B deild - Útgáfud.: 8. júlí 2015