Skipulagsstofnun staðfesti þann 30. maí 2014 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 20.
maí 2014.
Tillagan gerir ráð fyrir að legu Naustabrautar verði breytt, íbúðarsvæði 3.12.9 ÍB verði stækkað lítillega,
stofnanasvæði 3.21.4 S verði minnkað, opnu svæði 3.21.8 O verði breytt og markað verði nýtt verslunar- og þjónustusvæði 3.21.19
V.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsstofnun, 30. maí 2014.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
B-deild - Útgáfud.: 18. júní 2014