Breyting á deiliskipulagi Jaðarsvallar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. maí 2015 samþykkt
deiliskipulagsbreytingu fyrir Jaðarsvöll.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur nr. 1 við vélageymslu stækkar til norðurs.
Breyting á deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal.
Bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. maí 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir akstursíþrótta- og skotsvæðið á
Glerárdal.
Breytingin felur m.a. í sér að 36.030 m² lóð fyrir tjaldsvæði og bílastæði er afmörkuð austast á svæði
Bílaklúbbs Akureyrar og verður hún nr. 5 við Hlíðarfjallsveg. Lóð bílaklúbbsins, Hlíðarfjallsvegur 11, minnkar að sama
skapi.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær
þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 6. maí 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 11. maí 2015