Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 17. mars 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Jaðarsvöll.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur nr. 1 við vélageymslu og byggingarreitur nr. 2 fyrir yfirbyggt æfingasvæði færast til. Stærðir
haldast óbreyttar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 18. mars 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 1. apríl 2015