Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. febrúar 2016 samþykkt deiliskipulag fyrir Lögmannshlíð kirkjugarð.
Deiliskipulagið nær til Lögmannshlíðarkirkju og nágrennis. Í skipulaginu er gert ráð fyrir þremur lóðum, aðkomu og bílastæðum auk þess sem afmarkað er greftrunarsvæði.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 15. mars 2016,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 31. mars 2016 |