Nr. 229/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Orlofsbyggð norðan Kjarnalundar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 17. febrúar 2015 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir orlofsbyggð norðan Kjarnalundar.
Breytingin felur m.a. í sér að aðkoma að lóð nr. 2 verður tímabundið úr vestri. Bygg­ingar­reitir færast til á lóð nr. 2 og er fjórum þeirra snúið samsíða götu. Bindandi byggingar­lína er sett á byggingarreiti austan götunnar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 19. febrúar 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 5. mars 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan