Nr. 158/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Niðurfelling á kvöð um göngustíg í Baldursnesi og Njarðarnesi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 3. febrúar 2015 samþykkt deili­skipu­lags­breytingu í A-áfanga Krossaneshaga á lóðum við Baldursnes og Njarðarnes.
Breytingin felur í sér að á lóðum nr. 2, 4, 6 og 8 við Baldursnes og 1, 2, 9 og 14 við Njarðarnes, er felld niður kvöð um göngustíg.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 6. febrúar 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 20. febrúar 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan