Nr. 1269/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Hafnarstræti 90

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. desember 2014 samþykkt breytingu á deiliskipulagi miðbæjar, Drottningarbrautarreit vegna Hafnarstrætis 90.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur fyrir útbyggingu er afmarkaður sunnan við Hafnarstræti 90, þar sem heimilt verður að byggja svalir.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 18. desember 2014,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 12. janúar 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan