Nr. 1229/2014 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Strandgata 43

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 10. desember 2014 deili­skipu­lags­breyt­ingu fyrir suðurhluta Oddeyrar, á Strandgötu 43, á grundvelli e-liðar, 4. gr. í samþykkt um skipulagsnefnd og í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að heimilt er að rífa gamla bílgeymslu á lóðinni og byggja nýja bílgeymslu að hámarki 42 m² á sama stað.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. desember 2014,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 5. janúar 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan