Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 11. nóvember 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Undirhlíð Miðholt.
Breytingin felur í sér að fjölbýlishús nr. 1 við Undirhlíð verði 5-7 hæðir í stað 7 hæða áður. Fjöldi íbúða eykst úr 25 í 36 og engar kvaðir verða um aldur íbúa.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 3. desember 2015,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild - Útgáfud.: 17. desember 2015