Nr. 1056/2015 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi Hagahverfis.

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. nóvember 2015 samþykkt deiliskipulags­breytingu fyrir Hagahverfi.
Breytingin felur m.a. í sér breytingar á lóðamörkum Nonnahaga 4, Nausta II og Naustagötu 13. Bætt var við lóð fyrir spennistöð sem verður nr. 1 við Davíðshaga. Aðrar minniháttar breytingar voru gerðar á skipulaginu til samræmis við verkhönnun.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. nóvember 2015,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 25. nóvember 2015

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan