Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. maí 2014 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 og nýtt deiliskipulag fyrir
miðbæ Akureyrar.
Tillögurnar voru auglýstar frá 26. febrúar til 6. apríl 2014 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og laga um umhverfismat
áætlana nr. 105/2006. Athugasemdir bárust og hefur þeim sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn skipulagsnefndar.
Breytingar voru gerðar frá auglýstum tillögum, m.a. á umferðarhraða og bílastæðum við Glerárgötu og byggingaskilmálum
fyrir einstaka hús.
Tillögurnar hafa verið sendar til Skipulagsstofnunar til yfirferðar. Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt skipulaganna í B-deild
Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar,
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar