Samkomulagið undirrituðu Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, og Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðn. Samkomulagið undirritaði rafrænt Tryggvi Jóhannsson varaformaður Einingar-iðju.
Í gær var undirritað samkomulag milli meirihluta stofnaðila Iðnaðarsafnsins á Akureyri, sem eru Akureyrarbær, Eining-Iðja og Byggiðn - félag byggingamanna, um að fela Minjasafninu á Akureyri að annast rekstur Iðnaðarsafnsins næstu þrjú árin. Samkvæmt samkomulaginu gerir Akureyrarbær þjónustusamning við Minjasafnið um verkefnið og var sá samningur undirritaður við sama tækifæri.
Meginmarkmið samkomulagsins og samningsins eru m.a. að:
- Festa Iðnaðarsafnið í sessi og efla það til framtíðar
- Viðhalda og þróa áfram það merka frumkvöðlastarf sem Iðnaðarsafnið og aðstandendur þess hafa staðið fyrir frá stofnun þess
- Tryggja áframhaldandi samfellu í starfsemi Iðnaðarsafnsins, öruggan rekstur og varðveislu safngripa
- Nýta fagþekkingu og reynslu starfsmanna Minjasafnsins í þágu Iðnaðarsafnsins
Akureyrarbær greiðir árlega 12 m.kr. til verkefna sem kveðið er á um í samningnum, leggur til núverandi húsnæði Iðnaðarsafnsins og greiðir rekstrarkostnað þess. Rekstur Iðnaðarsafnsins verður samþættur rekstri Minjasafnsins, þannig stýrir safnstjóri Minjasafnsins þeim báðum og allt starfsfólk mun koma að rekstri, sýningarhaldi og miðlun á Iðnaðarsafninu. Stjórn Minjasafnsins ber í samræmi við það ábyrgð á daglegum rekstri Iðnaðarsafnsins. Stjórn Iðnaðarsafnsins starfar áfram á samningstímanum en í breyttu hlutverki. Stjórnin tekur þátt í stefnumótun og verður í ráðgjafar- og eftirlitshlutverki gagnvart verkefnum þjónustusamningsins.
Safnið verður í fyrstu opið um helgar kl. 13-16 á meðan starfsfólk gerir breytingar á sýningum. Stefnt er að því að safnið verið opið daglega kl. 13-16 frá og með sumardeginum fyrsta og kl. 11-17 frá 1. júní næstkomandi.