Megas & Senuþjófarnir á Græna hattinum

MegasMeistari Megas mætir til Akureyrar í kvöld, föstudagskvöld, og heldur tónleika á Græna hattinum ásamt hljómsveit sinni Senuþjófunum. Óhætt er að segja samstarf Megasar og Senuþjófanna gæfuríkt því samstarfið hefur getið af sér fjórar plötur síðan það hófst árið 2007. Á tónleikunum verður leikið efni af þessum plötum en einnig verður farið yfir allt það besta frá ferli Megasar og þar er af nógu að taka.

Á morgun, laugardag, heldur hljómsveitin Ensími tónleika á Græna hattinum. Þetta verður í annað sinn sem sveitin leikur á Græna hattinum en hún spilaði fyrr á árinu til að kynna fjórðu plötu sína, Gæludýr. Að þessu sinni mun lagavalið einkennast af þekktustu lögum sveitarinnar af farsælum ferli.

Báðir tónleikarnar hefjast kl. 22:00. Miðasala fer fram í Eymundsson og við innganginn.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan