MA-ingar á tónleikum

Menntaskólanemar streyma í salinn.
Menntaskólanemar streyma í salinn.

Nemendum í Menntaskólanum á Akureyri var boðið á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hofi kl. 13.30 í dag. Áhugasamir nemendur skunduðu í menningarhúsið upp úr klukkan eitt og hér um bil fylltu stóra salinn Hamraborg.

Sinfóníuhljómsveitin heldur síðan almenna tónleika kl. 19.30 í kvöld og ennþá eru nokkrir miðar lausir á http://www.menningarhus.is/ og í afgreiðslu Hofs.

Á efnisskránni eru tvö meistaraverk: glæsilegur klarínettukonsert Webers og kraftmikil sinfónía Beethovens. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar tónleikarnir fyrir nemendur MA voru um það bil að hefjast.

Sinfóníuhljómsveit Íslands Nemendur úr MA á tónleikum SÍ.

Nemendur úr MA á tónleikum SÍ. Nemendur úr MA á tónleikum SÍ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan