Lokanir gatna á Akureyrarvöku 2024

Akureyrarvaka fer fram um helgina, frá föstudegi til sunnudags. Búist er við miklu fjölmenni í miðbænum sem leiðir óhjákvæmilega til þess að loka þarf nokkrum götum tímabundið.

Listagilið verður lokað fyrir umferð ökutækja frá kl. 11 föstudaginn 30. ágúst til hádegis sunnudaginn 1. september. Það á einnig við um göturnar næst Ráðhústorgi, hluta Skipagötu, Strandgötu og Túngötu (rautt á meðfylgjandi korti). Göngugatan er lokuð samkvæmt sumarlokun (fjólublátt á meðfylgjandi korti).

Vegna Draugaslóðar á Hamarkotstúni verða hlutar Þórunnarstrætis, Hamarstígs og Byggðavegar lokuð fyrir umferð ökutækja frá kl. 21.30-23.45 föstudagskvöldið 30. ágúst en þó geta íbúar og neyðaraðilar ekið um Þórunnarstræti og hluta Hamarstígs (grænt á meðfylgjandi korti).

Gestir Draugaslóðar geta nýtt sérstök bílastæði sem verða á tjaldsvæðisreitnum við Þórunnarstræti frá kl. 21.30-23.45 (gult á meðfylgjandi korti). Umferðastýring inn á svæðið verður í höndum Björgunarsveitarinnar Súlna. Gestir eru eindregið hvattir til að nýta aðra samgöngumáta að svæðinu, munum að fátt er hollara en góð gönguferð um bæinn fagra. Sérstakt kort af bílastæði má finna HÉR.

Kort yfir lokanir gatna á Akureyrarvöku.

Helstu bílastæði við hátíðarsvæði:

  • Menningarhúsið Hof
  • Ráðhúsið
  • Skipagata
  • Hofsbót
  • Íþróttahöllin
  • Kaupvangur
  • Berjaya Akureyri Hótel
  • Neðan við Rósenborg
  • Sundlaug Akureyrar
  • Menntaskólinn á Akureyri

Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðunum.

 

Almenningssalerni verða á eftirtöldum stöðum:

  • Menningarhúsið Hof (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Bílastæði við Ráðhústorg (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Listasafnið á Akureyri (aðgengi fyrir fatlaða)
  • Lystigarðurinn (aðgengi fyrir fatlaða)

Vakin er athygli á því að samkvæmt 12. grein samþykktar Akureyrarbæjar um hundahald er óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku.

Umferð dróna er bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.

Dagskrá Akureyrarvöku er að finna á www.akureyrarvaka.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan