Leggjast gegn sameiningu framhaldsskólanna á forsendum sparnaðar

Frá fundi bæjarstjórnar í gær. Í pontu er Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, sem kynnt…
Frá fundi bæjarstjórnar í gær. Í pontu er Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, sem kynnti málið á dagskrá fundarins. Mynd: Ragnar Hólm.
Rætt var um fyrirhugaða sameiningu framhaldsskólanna á Akureyri á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær. Þar var samþykkt eftirfarandi bókun:
 
Við teljum einsýnt að skortur sé á trausti milli aðila, í allri umræðu um fyrirhugaða sameiningu/samstarf VMA og MA. Farið var of geyst, undirbúningi ábótavant og samráð hefði þurft að vera meira. Við leggjumst gegn sameiningu framhaldsskólanna tveggja á forsendum sparnaðar og hvetjum ráðherra til að veita skólasamfélögunum meira svigrúm til að koma saman og móta sér framtíðarsýn á eigin forsendum.
 
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan