Í reglugerð um hávaða nr. 724/2008 eru mörk hávaða frá umferð, atvinnustarfsemi o.fl. skilgreind. Hljóðstig hefur verið reiknað
út frá umferð á öllum helstu umferðargötum í íbúðabyggð á Akureyri og þannig hefur hávaði frá
umferð á Akureyri verið kortlagður. Aðgerðaráætlun hefur verið unnin út frá niðurstöðum kortlagningarinnar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 5. maí 2015 aðgerðaáætlunina gegn hávaða 2015-2020 en kortlagning gefur til kynna
að umferðarhávaði fer yfir viðmiðunargildi reglugerðarinnar við ákveðna hluta íbúðabyggða.
Aðgerðaáætlunin liggur frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar, Geislagötu 9, 1. hæð, til 10.
júní 2015, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér áætlunina. Áætlunin er einnig aðgengileg hér fyrir
neðan
Aðgerðaáætlun, Akureyrarkaupstaður 2015-2020
Ábendingum er hægt að skila skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti
(skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
6. maí 2015
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar