Kirkjutröppurnar lokaðar fram á haust vegna framkvæmda

Lokaðar kirkjutröppur. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.
Lokaðar kirkjutröppur. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Kirkjutröppunum hefur nú verið lokað vegna endurnýjunar á þeim og nánasta umhverfi þeirra.

Áætlað er að verklok verði í október nk. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.

Löngu tímabært var orðið að ráðast í endurnýjun á tröppunum sem voru farnar að láta mjög á sjá og gátu jafnvel reynst varasamar á veturna. Kirkjutröppurnar verða byggðar upp að nýju og steyptar í sömu mynd og þær hafa verið en um leið verður komið fyrir snjóbræðslulögnum í öllum þrepum og pöllum. Lýsing við og í tröppunum verður endurnýjuð, frárennsliskerfi komið í viðunandi lag og tryggt að merkingar séu með þeim hætti að þær auðveldi sjóndöprum og hreyfihömluðum að fara um þessa vinsælu gönguleið.

Nú er unnið að merkingum á svæðinu og verða nánari upplýsingar birtar hér á heimasíðunni á allra næstu dögum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan