Hríseyjarhátíðin verður haldin um næstu helgi og er búist við góðri aðsókn enda dagskráin skemmtileg og veðurspáin góð.
Boðið verður upp á óvissuferðir, ratleiki, pönnufótbolta, traktorsferðir, gömludansaball, varðeld og brekkusöng og kvöldvöku með Bjartmari Guðlaugssyni svo fátt eitt sé nefnt.
Hríseyjarferjan Sævar fer aukaferð á miðnætti laugardaginn 13. júlí.
Dagskráin er þessi:
Föstudagur 12. júlí:
Kaffi í görðum kl. 15-18
Óvissuferð barna kl. 18
Óvissuferð með Hjálmari Erni kl. 22
Laugardagur 13. júlí:
Dagskrá hefst kl. 13:
Kaffisala kvenfélagsins
Traktorsferðir um þorpið
Fjöruferð með trúðnum Skralla
Leikir og sprell í Íþróttamiðstöðinni
Gömludansaball
Hríseyjarmót í Pönnufótbolta
Binni D og Pétur Guð
Rapparinn Spiceman
Stúlli og Danni
Ratleikur
Hópakstur dráttarvéla
Kvöldvaka kl. 21:
Bjartmar Guðlaugsson
Anton Líni
Varðeldur og brekkusöngur
Nánari upplýsingar um ýmsa þjónustu og ferjuferðir á heimasíðu Hríseyjar.