Hluti Skógarlundar lokaður fyrir hádegi

Unnið verður að fræsingu malbiks í Skógarlundi frá Mýrarvegi að Dalsbraut, ásamt hringtorginu, í dag 13. júlí frá kl. 9 og fram undir hádegi.
 
Meðan á framkvæmdinni stendur verður Skógarlundur lokaður fyrir almenna umferð milli Dalsbrautar og Mýrarvegar, ásamt því að Dalsbraut verður lokuð frá Lundarskóla að Miðhúsabraut rétt að meðan unnið verður við hringtorgið sjálft.
 
Leiðir 1 og 2 hjá Strætisvögnum Akureyrar aka Þingvallastræti og Mýrarveg meðan á framkvæmdum stendur.
 
Stefnt er að því að vinna við aðra akstursleiðina í einu og verður því opið fyrir strætó og neyðarakstur ef þarf um þennan kafla meðan á framkvæmdum stendur en einhverjar tafir gera orðið á hringtorginu á meðan það er fræst.
 
Um eða upp úr hádeigi í dag (13. júlí) verður opnað fyrir alla umferð um svæðið en það verður áfram merkt sem vinnusvæði og má búast við hvössum brúnum á gulmerkta svæðinu þar til svæðið verður yfirlagt (malbikað) upp á nýtt, fyrri hluta næstu viku.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan