Göngugatan verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja í sumar

Göngugatan á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Göngugatan á Akureyri. Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Frá og með mánudeginum 3. júní og út ágúst verður göngugatan lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja.

Málið var til umræðu og afgreitt á fundi bæjarstjórnar 6. júní 2023 þar sem eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum:

Lagt er til að Samþykkt Akureyrarbæjar um verklagsreglur fyrir tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja verði breytt þannig að í 2.gr. verði bætt við lokun á sunnudögum í júní og ágúst kl. 11 - 19 sumarið 2023. Jafnframt er lagt til að sá hluti Hafnarstrætis sem í daglegu tali er kallað göngugata verði lokað alla daga, allan sólarhringinn í júní, júlí og ágúst árið 2024. Aðgengi skal tryggt fyrir P-merkta bíla, ökutæki viðbragðsaðila og aðföng rekstraraðila líkt og áður.

Vonandi verður mikil veðurblíða í allt sumar og þá er um að gera að njóta miðbæjarins og göngugötunnar án umferðar vélknúinna ökutækja.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan