Glerárgata 7 - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar.

Deiliskipulagstillagan á við um lóðina Glerárgötu 7 þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að reisa 5-6 hæða hótel þar sem efstu tvær hæðirnar eru inndregnar. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara að hámarki 1200 m2 fyrir allt að 38 bílastæði.

Deiliskipulagsuppdrátt má sjá hér. 

Tillagan verður jafnframt aðgengileg hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 29.mars - 14.maí 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillöguna á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 14.maí 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan