Gildistaka deiliskipulagsbreytingar, Dalsbraut 1H

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. júní 2016 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir verksmiðjusvæðið á Gleráreyrum.
Breytingin felur í sér að byggingarreitur er stækkaður ásamt breytingum á þaki fyrir hús nr. 1H við Dalsbraut.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 636/2016 sem fellur úr gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 28. júlí 2016,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild - Útgáfud.: 15. ágúst 2016

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan