Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 11. maí 2016 samþykkt tvær deiliskipulags-breytingar fyrir Hagahverfi.
Breyting er gerð á lóð nr. 1 við Matthíasarhaga sem felur í sér að nýtingarhlutfall hækkar úr 0,40 í 0,45. Gert er ráð fyrir fjögurra íbúða fjölbýlishúsi í stað par- eða raðhúss.
Breyting er gerð á lóð nr. 5 við Geirþrúðarhaga sem felur í sér að byggingarreitur stækkar um 1,5 m til austurs.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 12. maí 2016,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild Útgáfud.: 27. maí 2016