Drjúgan hluta sumars er göngugatan í miðbænum lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja með það fyrir augum að fólk fái notið sín og mannlífið blómstri.
Göngugatan er einungis opin fyrir fótgangandi sem hér segir:
- Júní og ágúst: Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá kl. 11-17
- Júlí: Alla daga frá kl. 11-17
Vörumóttaka er ætluð utan þessa tíma.
Aðkoma fyrir fatlaða að göngugötunni er að norðan, frá Brekkugötu.
Allir sem vilja nota göngugötuna til leikja og skemmtilegra viðburða í sumar eru hvattir til að láta slag standa og hafa samband við Akureyrarstofu sem veitir nánari upplýsingar. Netfangið er akureyrarstofa@akureyri.is.