Gætum vel að hreina vatninu okkar

Mynd af heimasíðu Norðurorku.
Mynd af heimasíðu Norðurorku.

Norðurorka hefur undanfarið staðið fyrir árveknisátaki þar sem minnt er á mikilvægi þess að ganga vel um vatnsverndarsvæði í Eyjafirði, að fólk sýni aðgát og láti strax vita ef vaknar grunur um mengun.

Um 75-80% neysluvatns bæjarbúa á Akureyri koma úr Hlíðarfjalli en Selllandslindir og Hesjuvallalindir eru hvorar sínum megin við skíðasvæði Akureyringa. Eitt af mikilvægum verkefnum Norðurorku er að tryggja nægilegt magn af hreinu og góðu neysluvatni til einstaklinga og fyrirtækja á veitusvæðinu. Þess vegna er mikilvægt að ganga vel um vatnsverndarsvæðin og láta strax vita ef grunur leikur á um mengun.

Óhöpp eða mengun á vatnsverndarsvæði skal tilkynna strax til Norðurorku svo hægt sé að bregðast við samstundis.

Sjá nánar á heimasíðu Norðurorku.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan