Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 5. febrúar. Á dagskránni verður meðal annars breyting á heiti sveitarfélagsins, starfsáætlun skipulagsráðs, tillögur um aðgerðir á húsnæðismarkaði og umhverfis- og samgöngustefna bæjarins.
Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 6. febrúar kl. 14.00, á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.