Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 1. mars

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 1. mars. Á dagskránni er m.a. tillaga að deiliskipulagi Móahverfis, breyting á deiliskipulagi miðbæjar vegna spennistöðvar við Strandgötu, umsókn um breytingu á deiliskipulagi vegna Hofsbótar 2 og umræða um starfsáætlun skipulagsráðs. 

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Athugið: Að þessu sinni verður um fjarfund að ræða. Eftir sem áður verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi og hægt að nálgast upptöku á vefsíðu bæjarins en upptökur eru að jafnaði aðgengilegar daginn eftir fund.

Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan