Fundur í bæjarstjórn 29. október haldinn í Hrísey

Næsti fundur bæjarstjórnar Akureyrarbæjar verður haldinn í Hrísey.
Næsti fundur bæjarstjórnar Akureyrarbæjar verður haldinn í Hrísey.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar þriðjudaginn 29. október næstkomandi kl. 16.

Fundurinn verður haldinn í íþróttahúsinu í Hrísey í tilefni af 20 ára sameiningarafmæli Akureyrar og Hríseyjar. Fundurinn er öllum opinn. Á dagskrá eru meðal annars verkefni Akureyrarbæjar í Hrísey. Hér er hægt að skoða dagskrá fundarins.

Fundurinn verður tekinn upp og gerður aðgengilegur hér á heimasíðunni að honum loknum. Hér má finna upptökur frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan