Dekurdagar hefjast á morgun

Hægt er að velja um fjölda viðburða sem gleðja hjartað á meðan verslanir og fyrirtæki bjóða mörg hve…
Hægt er að velja um fjölda viðburða sem gleðja hjartað á meðan verslanir og fyrirtæki bjóða mörg hver upp á ýmis konar dekurlega afslætti.

Dekurdagar á Akureyri hefjast á morgun, fimmtudag, og standa yfir alla helgina!

Dekurdagar hafa fest sig vel í sessi en þessa löngu helgi leyfir fólk sér að njóta alls kyns dekurs saman. Hægt er að velja um fjölda viðburða sem gleðja hjartað á meðan verslanir og fyrirtæki bjóða mörg hver upp á ýmis konar dekurlega afslætti.

Dekurdagar voru fyrst haldnir árið 2008 og eru stór styrktaraðili Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Fylgist með á Facebook síðu Dekurdaga þar sem m.a. má sjá fjölda tilboða sem verða í boði. Dekurdagar á hallóakureyri.is.

Dekurdagar eru viðburður að frumkvæði verslunareiganda á Akureyri til að skapa líf og gleði í bænum í október og sjá fulltrúar þeirra um viðburðinn, með aðstoð Akureyrarbæjar.

Október er alþjóðlegur mánuður brjóstakrabbameins og er víða um heim notaður til að vekja athygli á sjúkdómnum og safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini. Dekurdagar eru stór styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis og litur mánaðarins og viðburðarins er bleikur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan