Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 8. maí 2018 samþykkt deiliskipulagsbreytingu í Hagahverfi í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsbreytingin nær til lóða við Margrétarhaga og Nonnahaga. Gert er m.a. ráð fyrir að einbýlishúsalóðunum við Margrétarhaga 14-18 og við Nonnahaga 6-10 verði breytt í raðhúsalóðir. Lóðir nr. 7-21 við Nonnahaga minnka og fjölgar þar um eina einbýlishúsalóð.
Tillagan var auglýst frá 14. febrúar til 28. mars 2018. Ellefu athugasemdir bárust sem leiddu til breytinga á skipulaginu. Fallið var frá breytingum á lóðum nr. 1-5 við Nonnahaga þar sem gerð var tillaga um þjónustukjarna og smáhýsi. Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagssviðs, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
29. maí 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs