Deiliskipulagsbreyting - Ásatún 40-48, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. janúar 2015 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi 1. áfanga í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið nær til lóðar nr. 40-48 við Ásatún. Breytingin gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðarinnar og heimilt verður að byggja fjögur fjölbýlishús í stað tveggja áður. Íbúðafjöldi eykst og verða 60 íbúðir á lóðinni eftir breytingu. Ekki verður gert ráð fyrir bílgeymslum í húsunum og eykst fjöldi bílastæða á lóð.

Tillagan var auglýst frá 26. nóvember 2014 til 7. janúar 2015. Tvær athugasemdir bárust en leiddu ekki til breytinga á skipulaginu. Deiliskipulagsbreytingin verður send Skipulagsstofnun og tekur hún gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan