Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. október 2014 samþykkt deiliskipulagsbreytingu á hafnarsvæðum sunnan Glerár vegna
Norðurtanga, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsbreytingin nær til nyrsta hluta Norðurtanga. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun lóðar nr. 5 við Norðurtanga og hliðrun götunnar.
Hluta hafnarbakka er breytt í geymslu- og athafnasvæði í umsjá hafnarstjórnar.
Tillagan var auglýst frá 20. ágúst til 1. október 2014. Engar athugasemdir bárust. Breytingar voru gerðar á skipulagsgögnum eftir
auglýsingu þar sem m.a var sett kvöð um lagnir á lóðum og göngustíg hliðrað.
Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar,
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
29. október 2014
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar