Dalvíkurlína 2 - Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 7. febrúar 2023 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna áforma um lagningu Dalvíkurlínu 2.

Fyrirhuguð Dalvíkurlína 2 er 66 kV jarðstrengur sem liggur frá Akureyri til Dalvíkur. Tillagan felur annars vegar í sér breytingu á aðalskipulagsuppdrætti þar sem tákni fyrir Dalvíkurlínu 2 er bætt inn og hinsvegar breytingu á kafla 2.1.27 í greinargerð aðalskipulags.

Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 má nálgast hér  og greinargerð hér . Einnig er hægt að nálgast gögnin hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrar frá 28. júní til 12. ágúst 2023.

Athugasemdum þar sem nafn, heimilisfang og kennitala kemur fram má skila á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til og með 12. ágúst 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan