Breytingar á gjaldskrám taka gildi 1. september

Naustahverfi á Akureyri. Mynd: Kristófer Knútsen.
Naustahverfi á Akureyri. Mynd: Kristófer Knútsen.

Á fundi bæjarráðs í gær, fimmtudaginn 22. ágúst, var samþykkt lækkun á gjaldskrám Akureyrarbæjar í ljósi tilmæla ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá því í vor um aðgerðir til að greiða fyrir kjarasamningum og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.

Síðustu mánuði hefur verið unnið að útfærslu á gjaldskrárbreytingum sem lagðar voru fram á fundinum og taka gildi 1. september nk. Áður hafði bæjarstjórn samþykkt í kjölfar áskorana um aðkomu hins opinbera að kjarasamningum að endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu ásamt því að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir nemendur í grunnskólum sveitarfélagsins.

Á fundi bæjarstjórnar 19. mars var lögð fram og samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum eftirfarandi ályktun:

“Þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu á því fyrirkomulagi sem lagt var til grundvallar aðkomu hins opinbera að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, þá er ljóst að niðurstaða um langtímasamninga hefur náðst og markmið þeirra um að stuðla að minnkun verðbólgu, lækkun vaxta sem og að auka kaupmátt heimila í landinu, eru mikilvæg. Akureyrarbær mun því í samræmi við áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu og miða við að hækkun ársins 2024 verði ekki umfram 3,5%. Einnig skuldbindur Akureyrarbær sig til þess að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir nemendur í grunnskólum sveitarfélagsins í samstarfi við ríkisvaldið og með fyrirliggjandi kostnaðarþátttöku þess, frá og með ágúst 2024 til loka samningstímans. Þá mun Akureyrarbær tryggja í húsnæðisáætlunum sínum og skipulagi nægt framboð byggingarsvæða og lóðir til skemmri og lengri tíma og hlutdeild í stofnkostnaði almennra íbúða, sem og að halda áfram því verkefni að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla".

Bæjarráð samþykkti framlagðar breytingar á gjaldskrám Akureyrarbæjar með gildistíma frá og með 1. september 2024.

Hér má kynna sér nýjar gjaldskrár Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan