Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Lögmannshlíð, niðurstaða bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. júní 2015 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018.

Breytingin felur í sér að landnotkunarreitur fyrir kirkjugarð í Lögmannshlíð stækkar til suðurs og vesturs. Svæði fyrir þjónustustofnanir breytist og nær nú yfir kirkju og þjónustubyggingu.

Breytingin telst óveruleg og hefur fengið meðferð skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan